Montreal

New Delhi

Beijing

Copenhagen

Reykjavik

þriðjudagur, apríl 25, 2006

Veðrið

Það er endalaust hægt að tala um íslenska veðráttu og er eitthvað sem við íslendingar höfum framyfir aðra eða það finnst mér.
Áður en ég fór út á sunnudaginn og velti ég því fyrir mér hvort ég ætti að fara í pollagalla eða snjógalla. Ákvörðun var tekin og ég fór bara út í þykkri úlpu. Þegar ég var kominn út fór ég úr úlpuni og hugsaði með mér: “oh, ég er ekki með neina sólarvörn!” tveimur mín. seinna kom rigning og rok en sólin var samt ennþá.
Þetta er einmitt svona veðurfar sem er alltaf hægt að tala um. “ Þetta er nú meira veðrið”

Annars er ég búinn að vera mjög latur að blogga og hugga mig við það að Kári hefur ekki bloggað í fimm daga. Ég fer nefnilega svo oft á blogginn hjá Kára að þegar hann var í Strassburg var hann svo duglegur að blogga og bloggar svo skemmtilega að ég gerði síðuna hans að upphafsíðu í einhvern tíma.

Úff nú styttist í það að ég byrji að vinna aftur eftir þriggja mánaða annarri og kverjandi vinnu sem feðratæknir.

Byrja að vinna 2. maí.

Nú get ég bætt þessari starfsreynslu á ferilskránna mína.

Til hamingju Hildur mín.
Hildur var að komast inn í Ljósmæðranám og það voru 21 sem sóttu um og bara 8 sem komust inn. Frábær árangur hjá henni Hildi minni.


2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Frábært, til hamingju með að eiga svona brilljant konu :) og hún fær að sjálfsgöðu líka hamingjuóskir með að komast inn.

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju Hildur, gaman að heyra að þú komst inn.

Ég þakka fyrir hrósið Elli, annars er ég að reyna að taka mig á í blogginu núna, vonandi kemst ég bráðum í eitt á dag.