Íslenskt og japanskt fyrirtæki ákváðu að keppa í róðri á áttæringi.
Liðsmenn frá báðum fyrirtækjum æfðu stíft og voru í toppformi þegar að
sjálfri keppninni kom. Japanirnir urðu 1 km á undan íslenska liðinu.
Eftir útreiðina var mórallinn að sjálfsögðu heldur slæmur í íslenska
fyrirtækinu og yfirstjórnin ákvað að fyrirtækið yrði að vinna keppnina að
ári. Var settur á fót vinnuhópur til að skoða vandamálið.
Eftir heilmiklar pælingar komst vinnuhópurinn að því að Japanirnir létu 7
menn róa en einn stýra. Í íslenska liðinu var það einn sem réri og sjö sem
stjórnuðu. Vegna þessarar miklu krísu afréð yfirstjórn íslenska
fyrirtækisins að fá ráðgjafarfyrirtæki til að kanna strúktur íslenska
liðsins og gera nýtt skipurit ef á þyrfti að halda.
Eftir margra mánaða vinnu komust stjónunarfræðingarnir að því að í íslenska
bátnum væru það of margir sem stjórnuðu en of fáir sem réru. Með hliðsjón
af skýrslu sérfræðinganna var strax ráðist í skipulagsbreytingar. Í stað
þess að hafa sjö stýrimenn, einn áramann voru nú hafði fjórir stýrimenn,
tveir yfirstýrimenn, einn leiðtogi stýrimanna og einn áramaður. Að auki
var áramaðurinn _motiveraður" samkvæmt meginreglunni: Að breikka
starfssvið starfsmanna og veita þeim meiri ábyrgð".
Næstu keppni unnu Japanirnir með 2 km forskoti.
Íslenska fyrirtækið rak að sjálfsögðu áramanninn með tilliti til lélegrar
frammistöðu, en greiddi bónus til stjórnarinnar vegna þeirrar miklu vinnu
sem hún hafði innt af hendi.
Ráðgjafarfyrirtækið gerði nú aðra úttekt og komst að þeirri niðurstöðu að
valin hefði verið rétt taktík og hvatning, því væri það búnaðurinn sem
þyrfti að einbeita sér að.
Í dag er íslenska fyrirtækið að láta hanna nýjan bát.
3 ummæli:
Ha ha ha . . . góður, minnir mig á allar management tískurnar sem koma upp á nokkurra ára fresti. Total Quality Management, Lean Management, Outsourcing, Learning Organizations, Team-based Management, Knowledge Management, o.s.frv. o.s.frv.
LOL, alveg mögnuð skemmtidæmisaga.
Hlakka til hvernig næsta keppni milli landanna fer!!!!
Minnir á Landspítala háskóla..... hátækni.... hávaðaaa.....
Skrifa ummæli